ofurbloggarar eða...
Dagsetning
10. febrúar 2012
Klukkan
12.09.2006 20:16:01 / Lára

uppsögn.......

jæja gott fólk, nú hef ég ákveðið að segja mig hér úr þessarri samkundusíðu vegna þess að ég er komin með ógeð á blog.central.is og líka vegna þess að það er ekkert gaman að blogga með þessum píum hérna....:lol:

anywho... ef e-r hefur geypilegan áhuga á að fylgjast með mínu lífi outside vid_x þá er nýja bloggið mitt www.123.is\laura

ég þakka fyrir mig og hveð ykkur að sinni......


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.08.2006 11:48:34 / Lára

guð minn, guðmundur....

hér er greinilega svakafjör, það er alveg spurning með að offa þessarri síðu bara sem e-i samkundusíðu þar sem ég er hér ein með þetta bara, ég er í fýlu.......:frown:

lára..... aaaaaalein í bloggheimum.........


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.07.2006 13:21:40 / Lára

ég á nú bara ekki orð....

ég held ég fari nú bara að breyta nafninu á þessarri síðu í eg_x vegna þess að ég virðist vera eina manneskjan í þessum félagskap sem nennir að blogga hér..... já svei mér þá bara.....:$

en annars er bara fínt að frétta, raftingið gekk vonum framar og við hoppuðum öll fram af ægilegum klettum og ég veit ekki hvað og hvað, allt ákaflega þjóðlegt.....:haha:

svo skelltum við familían okkur í útilegu um helgina á laugarvatn og það var alveg hreint frábært bara, þá ég hafi næstum dáið úr kulda seinni nóttina... það var allt saman bætt upp með unaðsveðri á sunnudeginum; nú, það var fjöldi fólks samankomin í þessarri útilegu, ég og valdi með tristan og golíat og svo vorum við með anton, svo voru ívar og hrabba með gunnhildi og elmar og svo seinni nóttina voru þau með thelmu, dóttur stellu vinkonu hennar hröbbu og að sjálfsögðu að ógleymdum nóa, nú sigurjóna og sigurður voru með okkur fyrri nóttina og þau voru með bárð, skugga og andra með sér, svo seinni nóttina komu karó og ásthildur vinkonur hröbbu með börnin hennar karóar, tristan dúa og kareni emmu og svo seinni nóttina voru líka með okkur hrafrún og óskar með styrmi, ölmu og steinunni og nottla bumbubúann og cora var líka með, með bumbubúana sína:haha:... þannig að þarna var heldur betur samankomin fjöldi manns... svo fengum við líka nokkra í heimsókn; mamma kíkti og alla vinkona hröbbu og svo líka halla vinkona hröbbu með allan barnaskarann sinn og svo kom stella mamma thelmu á sunnudeginum...... ofsasvaka gaman saman

en jæja, ætli það sé ekki best að fara að reyna að halda áfram að vera duglegur og gera e-ð að viti hér í vinnunni......hohohoho

bæææææ bæææææ, sé ykkur seinna.....(#greiðihár/greiðihár#)... húmor fyrir þá sem fatta.....

lára  


» 8 hafa sagt sína skoðun

30.06.2006 10:42:10 / Lára

vegna fjölda áskoranna.....

... já og hreinlega skamma fyrir bloggleti þá hef ég ákveðið að blogga hér lítið eitt....

danmerkur ferðin okkar hröbbu tókst svona líka vel upp og við eyddum fullt af peningum og gerðum líka fullt skemmtilegt, fórum í Tivoli og svo loksins í Christianiu... það var heldur betur upplifelsi og með Guðs hjálp og minni persónulegu nenni mun ég setja inn myndir e-n tímann í nánustu framtíð.....

það er reyndar löngu kominn tími á mig með þessar myndir, bæði til að setja innhér að Silvía Night afmælinu okkar maríönnu, 80's afmælinu hennar agnesar, júróvision-kúreka partýi í lækjarbakka 4 og svo köbenferðin..... tala nú ekki um að uppdatea á síðunni hjá barninu... nýjustu myndirnar eru frá því í janúar .... það er skömm að þessu.....

en þetta stendur allt til bóta þar sem það eru ekki nema 19 dagar þangað til ég fer í langþráð sumarfrí og þá er nú aldrei að vita nema maður skelli sér í eitt allsherjar myndavesen á veraldarvefnum.....:haha:

svo um komandi tíma.... ég ku vera að fara í river rafting í hvítá á morgun, laugardag, ásamt fríðu föruneyti sem samanstendur af mér, valda, ívari og hröbbu, svo erég að vona að lilja og tinna komist líka og kannski maren vinkona þeirra og svo að ógleymdum hjalta fasteignasala viktorssyni..... voða gaman að því.....

svo í hádeginu ætla ég að fara og kaupa grilláhöld og svona yfirbreiðslu yfir grillið okkar nýja og það verður ábyggilega ógleymanleg verslunarferð, get ég sagt ykkur...... :$

látum þetta gott heita að sinni og veriði sæl....

lára


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.06.2006 11:38:29 / Lára

köben bara.....

jæja góðir hálsar þá er bara komið að því að undirrituð er að fara í pæjuferð til köben og það ekki seinna en á morgun.....:haha: við frú hrafnhildur ingibergs ætlum að skella okkur í smá peningaeyðsluferð og spóka okkur í leiðinni í sólinni í köben... svo var ég líka að heyra að það væri útsala í hm þannig að það verður ábyggilega ekkert voðalega leiðinlegt neitt...... við stefnum svo á að koma aftur á föstudagskvöldið svo við náum nú 17 júní hátíðarhöldunum með börnunum.....

já já voða gaman, annars er bara sirka ekkert að frétta, loksins hætt að rigna og grasið í garðinum mínum orðin hálfur metri á hæð.... hann valdimar minn nær nú kannski að slá meðan ég pæjast í köben.....

mig langaði nú bara að deila þessu með ykkur mínir kæru og diggu lesendur og bið ég ykkur þá bara vel að lifa þangað til næst........

lára


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.06.2006 11:51:15 / Lára

bubba tónleikar og frestuð útilega......

já þá er maður búin að upplifa alvöru bubba tónleika sem stóðu yfir í 3 tíma,  takk fyrir!!! þetta voru í einu orði sagt geggjaðir tónleikar sem gleymast seint... það var ótrúleg flóra af fólki þarna, allt frá 10 ára krökkum á háhest uppí forseta íslands og frú dorrit og einnig var þarna samankomin obbinn af áhugaverðustu dópistum landsins... en allir áttu það sameiginlegt að fíla bubba og hans tónlist.... bubbi er einstakur maður og hann sagði að það væri ekki nóg með að þetta væri 50 ára afmælisdagurinn hans heldur væri þetta mikill dagur fagnaðar því Halldór Ásgrímsson væri búin að segja af sér...... svo sagði hann öllum að fara og kaupa bókina Draumalandið og minnti svo alla á að lokum að hugsa um náttúruna og bað svo guð að blessa okkur.....:haha:

en yfir í annað; sökum lélegrar veðurspár þá hefur verið tekin sú ákvörðun um að fresta útilegu för um komandi helgi um óákveðin tíma.... í staðinn ætla ég að reyna að gera e-ð í garðinum og kannski kaupa parket eða e-ð sneddý sem mér dettur í hug

annars er bara ljúft að frétta, maður bara keyrir um á Jeep Grand Cherokee þessa dagana og er að kafna úr pæjustælum samferða því....:haha: gaman að því...... 

takk fyrir mig og munið að hafa Kærleikan í hjarta og passið að fá ekki harðlífi þegar þið segist elska Guð..... eins og góður maður orðaði það........


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.06.2006 14:56:49 / Maríanna Ósk

Seint blogga sumir eeeen.....

Sæl veriði öll, lömbin mín!

Ég hef ekki verið svo fræg að blogga hér áður en fylgist alltaf með af hliðarlínunni og hef gaman af...:lol:

Nú er ég stödd í blíðviðrinu hér á Akureyri í góðu atlæti móður minnar og yngri systkina. Ekkert nema gott um það að segja... sólin skín og fuglarnir syngja... jæja ég er kannski með smá óráði þar sem ég, Agla Bríet og Ingi "afi" keyrðum hingað í nótt og vorum ekki komin hingað fyrr en 5:30 í morgun... 3 sinnum vorum við skuggalega nálægt því að sofna en fórum mjög reglulega út og viðruðum okkur. Byrjaði samt á því að sækja Inga á leifsstöð á miðnætti þar sem ég hitti fyrir Benna nokkurn Árnason base jumpara með meiru. Hann bað fyrir kveðju á línuna, hér er hún komin.

Kíkti aðeins á rúntinn með Drífunni minni í gær á lánsbílnum hennar sem að þessu sinni er dodge durango að mig minnir... Gaman að þessum porche:| Vonandi blessast það allt saman!

Jæja nú ætla ég að stökkva út í blíðuna og baða mig í góðveðrinu:)  Bið ykkur öll vel að lifa  og ætla að enda þetta á gamalli vísu sem aldrei er of oft kveðin...

                        Sól,sól skín á mig ský, ský burt með þig. Gott er í sólinni að gleðja sig.. Sól sól skín á mig!!

Ástarkveðjur., Mary jane.,.


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.05.2006 15:50:33 / Lára

það virðist enginn nenna þessu hér nema ég......

... þannig að ég verð víst að blogga bara meira.....

það er samt spurning hvað ég á að tala um, nenni eila ekki að tala meira um þessar kosningar þannig að ég tala bara um tjaldútilegu og fleira skemmtilegt.

ég er að fara í útilegu eftir tvær vikur og mig hlakkar alveg svakalga til, llilja ætlar með og tinna og hrabba og ívar og fullt af fólki og öllum sem langar með er velkomið að koma líka, okkur vantar endilega e-n sem kann á gítar......:haha: 

og um hvítasunnuhelgina er hann valdimar minn að fara að smíða pall hjá móður sinni ásamt honum ívari og ég er að hugsa um að vera soldið þar bara um helgina, frí á mánudag og sonna, voða kósí......8)...... já og svo er auðvitað hún lilja mín með parý á sunnudaginn ..... hatta partý... gaman að því......

en meira hef ég ekki að segja í bili en bið ykkur vel að lifa og vona svo sannarlega að þið verðið Kærleikans aðnjótandi það sem eftir er dags.......;) ......halelúja...(með leonard cohen a.k.a helgi valur.......)

lára


» 7 hafa sagt sína skoðun

17.05.2006 14:40:40 / Lára

eyþór og silvía nótt......

guð minn góður, nú er ég alveg að verða komin með ógeð á þessu blessaða eyþórs máli...... nú er maður farin að fá e-mail um þetta líka þar sem e-r rannsóknarlögga frá www.malefnin.com er búin að vera heima, liggjandi yfir hinu og þessu og er bara komin með allar staðreyndirnar á hreint og ég veit ekki hvað......maður spyr sig.... Á FÓLK EKKI NEITT LÍF LENGUR...... mig varðar í rauninni ekkert um hann eyþór né kærustuna hans eða móeiði eða MÖMMU HENNAR MÓEIÐAR..... halló!!!!! ok maðurinn fór og keyrði og blabla... það vita þetta allir... en umfjöllunin, jesús, er gúrkutíð í fréttaframboði á sumrin..... ?????............

svo er það hún silvía nótt, mér finnst hún FRÁBÆR í alla staði "manneskja" en er þetta ekki líka að verða komið gott... ég get ekki líst ánægju minni yfir því að þetta mun taka enda um helgina þetta blessaða EUROVISION VESEN......vissulega held ég með henni og kaus hana þrivar meira að segja og klæddi mig uppá í tilefni dagsins þann 18 febrúar síðastliðinn enn ÞETTA ER FÍNT SKO, hún er á öllum síðum, í tv í útvarpinu og allt..... það hlýtur e-r að vera sammála mér að þetta sé að verða komið gott....

kveðja

bitra húsmóðirin lára í hlíð..........:haha:


» 11 hafa sagt sína skoðun

15.05.2006 08:30:16 / Hrund

Góð dag, elsk fólk - þett er allt svo glæsil...

Góðan daginn, gleðilegan haginn & vona að ekki sé slæmur maginn... Hvað er svo að frétta af fallega fólkinu? Var svo heppin að ég fékk að sjá þrjár selfyssingagyðjur hérna á laugardagskvöldið, þar á meðal eina sem á suddalegan Porscejeppa og er orðin rosa mikið svoleiðis týpa, alveg með lookkið á hreinu:) Ég sjálf, súrasta konan í bransanum,  fór auðvitað ekki út á meðal fólks frekar en fyrridaginn, enda frekar lúin eftir prófatörn og vökunætur. Er reyndar hvort sem er ekki sú mannblendnasta þannig að það er ekkert nýtt að ég láti mikinn mannfjölda fram hjá mér fara...

En annars allt einsog blómstrið eina - fer loksins að vinna í lok mánaðarins og GET EKKI beðið!! er komin með ágætis skólaleiða í bili. Hvað er síðan að frétta af myndunum úr afmælinu hennar Agnesar?? Mig langar svo að sjá!!

& ég er bara ánægð með Eyþór að halda uppi nafni bæjarins með því að vera mannlegur & feta í fótspor mín með smá kæruleysi að hætti sjálfstæðisflokksins & missa ökuréttindin væntanlega. Þetter allt að koma þarna fyrir austan. Pínu glatað samt að þetta sé svona mikið issue að það sé bara tekinn hálfur fréttatími í þetta, ég meina; hvað ætli það sé yfir höfuð stór prósenta af þjóðinni sem hefur keyrt undir áhrifum áfengis (mismikið auðvitað) & komist upp með það?? Án efa þó nokkuð margir… Aumingja Eyþór. En maður verður samt víst að vera traustsins verður þegar maður er í framboði…

Horfði líka á fína sprautufíklaparið sem Kompás er búinn að vera að fylgjast með undanfarið, þau eru voða fín – greyin að þurfa bara að búa í hitakompu í skítugum fötum… svona vill þetta stundum verða með fólk sem aldrei hefur átt nokkurn möguleika á því að framfleyta sér & étur bara konta, rítalín & nokkrar sprautur á dag. Mér finnst þetta svolítið sorglegt allt saman. Ég dáist að fólkinu sem rekur Byrgið & álíka staði.

En vona annars að allir séu sælir & glaðir með bros á vör.  Sólarkveðja frá mér.

 

 



 


» 11 hafa sagt sína skoðun

06.05.2006 17:42:16 / Hrund

Mínútuþögn fyrir Agnesi í tilefni dagsins...

Agnes á afmæli og það á hún nú og það er í dag, Agnes á afmæli og það á hún nú í dag... og heyr nú hér eitt lag við viljum tralla þér og heyr nú hér - hvernig við tröllum þér "Tralalalalaallalallalallalalal''. Voða fínt alveg hreint og afar hressandi.

En allavegana; til hamingju með daginn Agnes mín... þú ert sykurhúðaður súkkulaðipúðursykurshunangspúði alveg í gegn. Jeeeeeeeeeeeeeeeeiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii. Megi dagurinn verða þér endalaust ánægjulegur og allir dagar hér eftir betri en bestir!!

 

 



Þúsund velfarnaðar og hamingjukveðjur, dúkkan mín J

 

Mússímússí*

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

02.05.2006 14:25:58 / Lára

þetta er fyndið....

Ég drap bjór af því að ég er á sýru......

Tjekkiði hvað þið eruð og setið í kommentið

Veldu mánuðinn sem þú fæddist-
Janúar- Ég drap
Febrúar- Ég sló
Mars- Ég svaf hjá
Apríl- Ég horfði á                                                           
Maí- Ég fróaði mér með                                                                
Júní- Ég slefaði á  
Julí-Ég hló að
Ágúst- Ég stakk
September- Ég skaut
Október- Ég naut ásta með
Nóvember- Ég handtók
Desember-Ég kúkaði á  

Veldu núna afmælisdaginn þinn-

1. Hóru
2. Kærasta/una þína 
3. Konu með HIV
4. Kynæsandi Dverg
5. Jólasvein
6. Playboykanínu
7. Giftri móðir 
8. Kennara
9. Mömmu þína 
10. Páskahérann
11. Köttinn
12. Djöflinum
13. Asískum skiptinema 
14. Jónsa í svörtum fötum 
15. Grjót
16. Hund
17. Klámstjörnu
18. Þvagprufu
19. Pung
20. Húsið þitt 
21. Svín
22. Lampa
23. Kúk
24. Davíð Oddson 
25. 50 cent
26. Kynskipting
27. Yddara
28. Birgittu Haukdal
29. Bjór
30. Tappatogara
31. Stólpípu

Veldu Þriðja stafinn í föðurnafninu þínu -

A-  Af því að ég elska súkkulaði
B-  Af því að mér leiddist
C-  Af því að buxurnar mínar voru of þröngar 
D-  Af því að þarf alltaf að prumpa
E-  Af því að hjartað mitt er tveim nr of lítið

F-  Af því að ég fékk engar gjafir um jólin
G-  Af því mér finnst egg góð
H-  Af því að ég er á sýru
I-   Af því ég misteig mig
J-   Af því ég er með vörtu
K-  Af því  mér líkar Cheer
L-   Af því að ég var skökk/skakkur
M-  Af því ég var full/ur
N-  Af því að mamma sagði mér að gera það
O-  Af því ég er hýr
P-   Af því ér er einmanna
Q-  Af því mamma og pabbi eru alltaf að rífast
R-   Af því að ég er gröð/graður
S-   Af því mig langar að deyja 
T-   Af því ég hata skóla
U-  Af því ég þarf að fróa mér
V-  Af því að ég elska náttfata party
W-  Af því að það róar mig
X-  Af því að ég elska marmelaði 

Y-  Af því að ég elska prump
Ö- Af því ég er að safna rassahárum 


» 15 hafa sagt sína skoðun

02.05.2006 11:24:54 / Lára

þar sem agnes er ekki með tölvu......

...þá tek ég mér hér bessaleyfi og ætla að reyna að segja frá þessu afmæliskveldi.....

við maríanna ósk mættum um hálf níu, eftir nett meðvirkinskast hjá mér um það að nú væru stelpurnar alveg ábyggilega að gera e-ð grín í mér og maríönnu með því að segja bara okkur tveimur að koma í 80´s klæðnaði.... eeeeeen svo reyndist aldeilis ekki vera...... þegar við komum var anna árna/anna kolla aka. drífa björk mætt þarna virkilega smart (það verða eila að fylgja með þessu myndir....) agnes var í pallíettukolaportskjól frá maríönnu, virkilega smartur, þórunn aka. helga bettý var mætt í jólatréskrauts skyrtu með hjarta mynstri, sem búið var að taka axlapúðana úr...( believe me, skyrtan leit ekki betur út fyrir vikið) og svo vorum við maríanna líka voða smart... maður nottla saumaði sér e-ð shit og e-ð.... svo voru þarna ýmsir fleiri en það verður bara að koma í ljós þegar myndirnar koma...:haha:

svo þegar leið á kveldið fór heldur betur að færast fjör í leikinn, það voru vafasamar myndatökur sem mér skilst að búið sé að eyða og ýmislegt fleira....

og svo fórum við nottla allar á pakkarann fína í múnderíngum nema hvað að agnes ákvað að faraí bikiní utanyfir leggingsið sem hún var í, en þetta bikíní leit út eins og jane fonda sundbolur, toppurinn var nebblega svona síður, you know..... (myndir eða....)

agnes gerði stormandi lukku á pakkaranum, eyðilagði meðal annars kvöldið fyrir e-m eldriborgarakonum sem sátu þarna og öfunduðust útí þá staðreynd að þær hafi aldrei á ævi sinni litið svo vel út að geta verið svona til fara fyrir framan almenning 

hahah gaman að því.....

vonum núna bara að við fáum fleiri ferðasögur.....

takk fyrir mig

lára


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.04.2006 16:29:14 / Hrund

Góða skemmtun elskurnar...

Heyrði í henni Agnesi minni áðan & get alveg sagt að mig langar alveg helling að koma & sjæa ykkur allar svona einu sinni áður en ég andast... En því miður er prófatörn, ritgerðarsmíð & svo vinna í fyrramálið, sem veldur því að ég fer víst ekki spönn frá rassi. Fékk þó loforð um að það yrðu teknar nokkurhundruð myndir & jafnvel videoupptaka af herlegheitunum... Plís - það væri alveg æðigæði!!

En allavegana vil ég bara óska ykkur þeirrar bestu skemmtunar sem um getur og megi hamingjan & hláturinn vera ykkur til halds & trausts.

Risaknúsar frá mér:*


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.04.2006 15:10:10 / Hrund

Hei...

Hvað segiði mér mínar kæru, af skemmtilegum myndum sem þið eigið frá daglega lífinu og/eða skemmtunum ykkar... finnst alveg farið að vanta smá svona augnakonfekt á síðuna hjá okkur, ekki satt?

Og annað... sérdeilis gaman að öll hátíðar- og afmælishöldin séu akkúrat þegar ég er með svæsið magasár, stríði við svefnleysi á háu stigi, er hvítari en mjólk, með flóka í hári og blóðhlaupin augu af prófkvíða og stressi...

Bömmer:$


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Leitarbox

Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti